Lýsing á verkefninu
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga hefur fengið samþykkt úthlutun stofnframlaga auk sérstaks byggðaframlags til byggingar á 5 íbúðum í íbúðakjarna fyrir fatlað fólk. Auk íbúðanna verður í kjarnanum samverurými fyrir íbúa og aðstaða fyrir starfsmenn.